Guð hvað ég elska kaffi!! En yfir í annað - Baráttudag kvenna styð
ég heilshugar en oft finnst mér svona ganga út í öfgar! Á bloggi
vinkonu minnar er að finna lista yfir það sem konur ættu að gera
sem er hér neðar. Sjálfsagt er þetta nú allt í góðu gríni en öllu
gríni fylgir einhver alvara, eða hvað?!
Jæja konur.. Nú skulum
við standa saman......
Ásamt því að sækja um launahækkun eru íslenskar konur hvattar til
að:
-Sofa yfir sig.
-Fara í sömu nærföt og í gær.
-Pissa á setuna - og útfyrir, ef tími vinnst til.
-Mála sig ekki - og alls ekki raka.
-Mæta of seint í vinnuna - sparka í stimpilklukkuna.
-Fara strax í kaffi - kvarta yfir því að það sé
a) of kalt
b) of sterkt
c) of svart.
-Prumpa.
-Reyna við undirmennina - eða bara klípa þá í tippið.
-Fara of snemma heim - biðja næturvörðinn að stimpla sig út.
-Flauta á alla karla í umferðinni og senda þeim fingurinn eða
ulla.
-Gleyma að sækja börnin á leikskólann.
-Setjast fyrir framan sjónvarpið um leið og komið er heim.
-Fá sér bjór.
-Urra - jafnvel bíta - ef einhver spyr eftir kvöldmat.
-Ropa.
-Sofna yfir Idol.
-Fá sér bjór.
-Leggjast í öllum fötunum í rúmið og helst strá yfir það brauð eða
kexmylsnu.
-Sofna áður en makinn nær að bursta tennurnar.
-Hrjóta.
Ég veit ekki með ykkur en ég held ég þekki engan karlmann sem gerir
allt þetta!! Ég á t.a.m. nokkuð marga strákavini og af þeim er það
aðeins einn sem ég man eftir að pissaði út fyrir setuna!
Ég man ekki eftir að hafa heyrt strák prumpa í návist minni nema
kannski bræður mínir!
Ég þekki engan sem hefur gleymt að sækja börnin í leikskólann!
Ég hef aldrei heyrt neinn urra.. eða séð neinn bíta. Nema kannski
þegar ég var krakki!
Mér finnst mjög eðlilegt að ropa og yfirleitt heyrir maður líka
afsakið eftir á!
Þetta er svona það helsta sem mér dettur í hug!
Nú skulum við snúa okkur að mér:
Ég hef sofið yfir mig!
Ég hef sleppt því að mála mig!
Ég byrja yfirleitt á því að ná mér í kaffi þegar ég mæti í
vinnuna!
Ég prumpa og ropa (Gera það ekki allir?)
Ég sest oft fyrir framan sjónvarpið þegar ég kem heim!
Ég fæ mér oft bjór.. enda er hann góður!!
Nú veit ég ekki alveg hvort ég hrýt en ég held ekki af því að ég
sef á maganum eða á hliðinni!
Ég hef aldrei klipið neinn í tippið.. svo ég muni! En ég hef aldrei
verið klipin í píkuna. Einu sinni var ég reyndar klipin í brjóstið
af ógeðslegum manni á djamminu á Flúðum.
Kannski er ég að taka þetta of alvarlega en svona nokkuð fer
ofsalega í taugarnar á mér.. eins og þegar stelpur segja oft
„
allir karlmenn
gera hitt eða þetta, eða eru svín..“ Þetta eru yfirlýsingar sem
eiga ekki við rök að styðjast!
Jæja þar hafið þið það!! Pistill dagsins!!